
TRÚBADOR
Trúbador fyrir veisluna þína
Lifandi tónlist getur gert ótrúlega mikið fyrir stemninguna. Hvort sem þú vilt notalega tónlist yfir matnum, söng með gestunum eða meiri keyrslu þegar líður á kvöldið, þá er hægt að sníða tónlistina að tilefninu.
Trúbadorinn getur komið fram einn og sér eða verið hluti af stærri heildarpakka fyrir viðburðinn. Við förum yfir hvernig stemningu þú ert að leita að, hvernig gestahópurinn er samsettur og hvar tónlistin passar best inn í dagskrána.
Viðburðastjórnun/ veislustýring
Við höldum utan um viðburðinn
Góður viðburður á að líta út fyrir að ganga áreynslulaust fyrir sig. Á bak við tjöldin þarf þó oft að halda utan um ótal smáatriði, tímasetningar, atriði og fólk.
Við getum tekið að okkur viðburðastjórnun, veislustýringu eða hvort tveggja. Umfangið fer eftir því hvað þú þarft aðstoð með. Við getum komið inn snemma í ferlið og aðstoðað við skipulagningu eða tekið við keflinu þegar kemur að framkvæmdinni sjálfri.


DJ þjónusta
DJ sem heldur uppi stemningunni
Það er meira fólgið í góðum DJ en að ýta á play. Tónlistin þarf að passa við gestina, stemninguna og það sem er að gerast hverju sinni.
Við sjáum um DJ þjónustu fyrir alls konar viðburði, hvort sem þú vilt rólega byrjun yfir matnum, klassíska slagara sem allir þekkja eða fullt dansgólf fram eftir kvöldi.
Hljóðkerfi/& ljós með uppsetningu
Hljóð og lýsing án vesens
Gott hljóð og rétt lýsing geta gjörbreytt rýminu og stemningunni í veislunni. En það á ekki að þurfa að vera þitt verkefni að finna út hvaða snúra fer hvert.
Við mætum á staðinn með þann búnað sem hentar viðburðinum, setjum hann upp og stillum allt þannig að það sé tilbúið þegar gestirnir mæta.
Við getum séð um hljóð fyrir tónlist, ræður, veislustjórn og önnur atriði ásamt lýsingu sem hjálpar til við að skapa réttu stemninguna í salnum.

