Hver er Á bakvið Heildarpakkann?

Ívar Daníels er gríðarlega reynslumikill þegar kemur að skemmtannageiranum, hefur komið víða við sl tæp 20 árin.


Reynslan er hvað mest í að stýra viðburðum á borð við brúðkaup eða árshátíðir en hann hefur stýrt ansi mörgum viðburðum fyrir stórfyrirtæki en einnig komið að gríðarlega mörgum brúðkaupum þar sem hann hefur stýrt öllu frá a-ö.


Reynslan liggur ekki eingöngu í að stýra viðburðum en hann hefur einnig sungið sl tæp 20 ár við öll hin fjölbreyttu tilefni á borð við brúðkaupsathafnir, brúðkaupsveislur, árshátíðir, stórafmæli og þess háttar, allt yfir í jarðarfarir.


Gríðarlega mikil og góð reynsla af baki í að gera viðburðinn öruggann, skemmtilegann og notalegann en á sama hátt fyndinn og hressandi.



Heildarpakkinn.is kom upp hjá honum og bróður hans og varð að raunveruleika enda löngu tímabært að nota þessa glæsilegu reynslu í eitthvað Meira en að bara mæta og skemmta.